8
Einu sinni hafði sérstaklega mikill mannfjöldi safnast í kringum Jesú. Allir voru matarlausir, og Jesús kallaði lærisveina sína til sín.Matt 15:32-39 „Sjáiði allt þetta vesalings fólk,“ sagði hann við þá. „Það hefur verið hérna í þrjá daga og hefur ekkert að borða.Matt 15:32 Flest þeirra eru langt að komin – ef ég sendi þau heim matarlaus líður yfir þau af hungri á leiðinni.“Matt 15:32 „En hvar ættum við eiginlega að fá mat handa öllu þessu fólki hérna úti í óbyggðunum?“ spurðu lærisveinarnir.Matt 15:33 „Hversu marga brauðhleifa eruð þið með?“ spurði Jesús. „Sjö,“ svöruðu þeir.Matt 15:34 Jesús lét fólkið setjast á jörðina. Síðan tók hann brauðhleifana sjö, þakkaði Guði fyrir þá og byrjaði að rífa þá í bita, og lét lærisveinana útdeila þeim til fólksins.Matt 15:35-36 Jesús þakkar fyrir brauðið — þetta minnir á seinustu kvöldmáltíðina og sýnir hann sem uppsprettu blessunar og að Jesús er nóg, jafnvel í eyðimörk. Þeir voru líka með nokkra fiska með sér, sem Jesús blessaði og lét þá gefa fólkinu.Matt 15:36 Allir borðuðu þar til þeir voru orðnir saddir, og lærisveinarnir söfnuðu síðan leifunum saman þar til þeir voru komnir með sjö fullar körfur.Matt 15:37 Þegar allir voru búnir að borða – um fjögur þúsund manns samtals – sendi Jesús fólkið af stað heim.Matt 15:38 Þetta er annað stóra kraftaverkið að fæða mannjölda, það fyrra í 6:30-44. Jesús sýnir aftur að hann er nóg, nú fyrir minni hóp og á öðruvísi svæði.
10 Eftir það steig hann um borð í bát með lærisveinunum og þeir fóru af stað til Dalmanútasvæðisins.Matt 15:39 „Dalmanúta“ er líklega staðarnafn nálægt Magdala við Galileuvatn, vestan megin við vatnið. 11 Þar komu farísearnir til hans og vildu fá hann til að sýna þeim kraftaverk til að sanna sig fyrir þeim.Matt 16:1; Lúk 11:16 12 Jesús andvarpaði djúpt. „Þetta fólk er æst í sannanir,“ sagði hann, „en það er einfaldlega ekki í boði.“Matt 16:4; Lúk 11:29 „Andvarpaði djúpt“ — Jesús er sár og reiður yfir vantrú þeirra. Þeir hafa séð kraftaverk en vilja samt að hann sanni sig fyrir þeim. 13 Síðan fór hann þaðan, steig um borð í bátinn og sigldi aftur yfir vatnið.Matt 16:4
14 Lærisveinarnir höfðu gleymt að taka með sér mat áður en þeir lögðu af stað, og voru bara með einn brauðhleif með sér í bátnum.Matt 16:5 15 „Gætið ykkar á súrdeigi faríseanna og súrdeigi Heródesar,“ sagði Jesús við þá.Matt 16:6; Lúk 12:1 „Súrdeig“ er myndlíking fyrir vond áhrif eða kenningu. Jesús varar við kenningum farísea (lög og hefðir) og Heródesar (pólitískt spillandi vald). 16 Lærisveinarnir skildu ekki alveg hvað það átti að þýða. „Hann hlýtur að vera að meina það að við erum ekki með brauð með okkur,“ ákváðu þeir að lokum.Matt 16:7 17 „Haldið þið virkilega að ég sé að tala um brauðið sem þið höfðuð með ykkur?“ sagði Jesús þegar hann heyrði þetta. „Eruð þið í alvörunni ekki búnir að ná þessu?Matt 16:8-9 18 Þið eruð með augu og eyru – sjáið þið ekki og heyrið? Eruð þið búnir að gleyma öllu?Jer 5:21; Jes 6:9-10; Mark 4:12 19 Hversu mörgum körfum fullum af matarleifum söfnuðuð þið þegar ég braut brauðhleifana fyrir fimm þúsund manna hópinn?“ „Tólf,“ svöruðu þeir.Mark 6:38-44; Matt 14:17-21 20 „Og hversu mörgum körfum fullum af matarleifum söfnuðuð þið þegar ég brauð brauðhleifana fyrir fjögur þúsund manna hópinn?“ spurði Jesús. „Sjö,“ svöruðu þeir.Mark 8:5-8; Matt 15:34-38 21 „Skiljið þið þetta virkilega ekki?“ sagði Jesús.Matt 16:11 Lærisveinarnir skilja ekki að Jesús er nóg — þeir eru enn að hugsa um líkamlegt brauð, en hann er að vara við kenningu farísea.
22 Þegar Jesús kom til Betsaídu kom fólk til hans með blindan mann og bað Jesú um að snerta hann.Mark 10:46-52 23 Jesús tók í höndina á blinda manninum og leiddi hann út úr þorpinu. Hann hrækti í augu mannsins og snerti hann svo. „Sérðu eitthvað?“ spurði hann manninn.Mark 7:33 Jesús spýtir og leggur hendur yfir hann — þetta var algeng lækningaraðferð á þessum tíma. Hann leiðir manninn út úr þorpinu sennilega til að þeir séu einir. 24 Maðurinn leit upp. „Jú,“ svaraði hann, „ég sé fólk á gangi – það lítur út eins og tré!“Mark 8:25 25 Jesús lagði þá aftur hendurnar á augu mannsins og lét hann síðan horfa upp aftur. Við það fékk maðurinn sjónina og sá skýrt fólkið í kringum sig.Mark 8:23 26 Jesús sendi hann af stað heim. „Farðu ekki inn í þorpið,“ sagði hann, „og segðu engum í þorpinu frá þessu.“Mark 5:43; Mark 7:36 Jesús bannar honum að fara aftur inn í þorpið — þetta er hluti af „messíasarleyndarmálinu“ í Markúsi: hann vill ekki að fólk sjái hann bara sem kraftaverkamann heldur sem Messías.
27 Eftir þetta fór Jesús af stað með lærisveinum sínum til þorpanna í sesarísku Filippí. „Hvað er fólk að segja um mig?“ spurði hann lærisveinana á leiðinni. „Hver er sagt að ég sé?“Matt 16:13-20; Lúk 9:18-21 „Sesarea Filippí“ er norðan við Galileu — fjarri Gyðingasvæðum. Þetta er mikilvægur staður fyrir játningu Péturs. 28 „Jóhannes skírari, eða Elía,“ svöruðu þeir, „eða einn af spámönnunum.“Matt 16:14; Lúk 9:19 29 „En hver haldið þið að ég sé?“ spurði hann. „Þú ert Kristur,“ svaraði Pétur.Matt 16:16; Lúk 9:20; Jóh 6:69 „Kristur“ (Messías) — Pétur játar að Jesús er sá sem Guð lofaði í GT. Þetta er miðpunktur Markúsarguðspjalls. 30 En Jesús sagði þeim að þeir mættu ekki segja neinum hver hann væri.Matt 16:20; Lúk 9:21 31 Hann útskýrði fyrir þeim að Mannssonurinn myndi þurfa að ganga í gegnum miklar þjáningar og höfnun öldunganna, æðstuprestanna og lögmálskennarana. Að lokum yrði hann tekinn af lífi en myndi síðan rísa upp þremur dögum síðar.Matt 16:21; Lúk 9:22; Mark 9:31; Mark 10:33-34 Fyrsti spádómurinn um þjáningu Jesús útskýrir að Messías verður að þjást og deyja, ekki bara sigra. Manssonurinn, sjá Mrk 2:10. 32 Allt þetta sagði hann af svo mikilli ákveðni að Pétri fannst einhver þurfa að gagnrýna hann. „Hvernig geturðu sagt svona lagað?“ byrjaði hann.Matt 16:22 33 Jesús leit á hina lærisveinana. „Burt með þig, Satan!“ sagði hann. „Þetta er ekki frá Guði komið, heldur frá mönnum.“Matt 16:23 Jesús kallar Pétur „Satan“ – ekki sem illmenni, heldur vegna þess að hann hugsar mannlega (vald og sigur) í stað áætlunar Guðs Guðs (þjáning og kross).
34 Hann kallaði til sín bæði mannfjöldann og lærisveina sína. „Allir þeir sem vilja fylgja mér verða að afneita sjálfum sér, taka upp krossinn sinn, og koma með mér,“ sagði hann.Matt 10:38; Matt 16:24; Lúk 9:23; Lúk 14:27 35 „Sá sem reynir að bjarga lífi sínu mun missa það, en sá sem missir lífið vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga lífi sínu.Matt 10:39; Matt 16:25; Lúk 9:24; Lúk 17:33; Jóh 12:25 36 Það er ekkert svo verðmætt að það sé þess virði að eignast það ef það kostar mann sálina.Matt 16:26; Lúk 9:25 37 Er ekki sálin það dýrmætasta sem hægt er að eiga?Matt 16:26 38 Ef þú skammast þín fyrir mig og það sem ég segi á þessum síðustu og verstu tímum mun Mannssonurinn skammast sín fyrir þig þegar hann kemur með englunum í dýrð Guðs.“Matt 10:33; Lúk 9:26; 2Tím 2:12 Jesús kallar til fylgis sem kostar: að afneita sjálfum sér og taka kross (tákn dauða og vanvirðu). En hann lofar endurgjald við endurkomu sína í dýrð. Manssonurinn, sjá skýring við Mrk 2:10.

8:1 Matt 15:32-39

8:2 Matt 15:32

8:3 Matt 15:32

8:4 Matt 15:33

8:5 Matt 15:34

8:6 Matt 15:35-36

8:6 Jesús þakkar fyrir brauðið — þetta minnir á seinustu kvöldmáltíðina og sýnir hann sem uppsprettu blessunar og að Jesús er nóg, jafnvel í eyðimörk.

8:7 Matt 15:36

8:8 Matt 15:37

8:9 Matt 15:38

8:9 Þetta er annað stóra kraftaverkið að fæða mannjölda, það fyrra í 6:30-44. Jesús sýnir aftur að hann er nóg, nú fyrir minni hóp og á öðruvísi svæði.

8:10 Matt 15:39

8:10 „Dalmanúta“ er líklega staðarnafn nálægt Magdala við Galileuvatn, vestan megin við vatnið.

8:11 Matt 16:1; Lúk 11:16

8:12 Matt 16:4; Lúk 11:29

8:12 „Andvarpaði djúpt“ — Jesús er sár og reiður yfir vantrú þeirra. Þeir hafa séð kraftaverk en vilja samt að hann sanni sig fyrir þeim.

8:13 Matt 16:4

8:14 Matt 16:5

8:15 Matt 16:6; Lúk 12:1

8:15 „Súrdeig“ er myndlíking fyrir vond áhrif eða kenningu. Jesús varar við kenningum farísea (lög og hefðir) og Heródesar (pólitískt spillandi vald).

8:16 Matt 16:7

8:17 Matt 16:8-9

8:18 Jer 5:21; Jes 6:9-10; Mark 4:12

8:19 Mark 6:38-44; Matt 14:17-21

8:20 Mark 8:5-8; Matt 15:34-38

8:21 Matt 16:11

8:21 Lærisveinarnir skilja ekki að Jesús er nóg — þeir eru enn að hugsa um líkamlegt brauð, en hann er að vara við kenningu farísea.

8:22 Mark 10:46-52

8:23 Mark 7:33

8:23 Jesús spýtir og leggur hendur yfir hann — þetta var algeng lækningaraðferð á þessum tíma. Hann leiðir manninn út úr þorpinu sennilega til að þeir séu einir.

8:24 Mark 8:25

8:25 Mark 8:23

8:26 Mark 5:43; Mark 7:36

8:26 Jesús bannar honum að fara aftur inn í þorpið — þetta er hluti af „messíasarleyndarmálinu“ í Markúsi: hann vill ekki að fólk sjái hann bara sem kraftaverkamann heldur sem Messías.

8:27 Matt 16:13-20; Lúk 9:18-21

8:27 „Sesarea Filippí“ er norðan við Galileu — fjarri Gyðingasvæðum. Þetta er mikilvægur staður fyrir játningu Péturs.

8:28 Matt 16:14; Lúk 9:19

8:29 Matt 16:16; Lúk 9:20; Jóh 6:69

8:29 „Kristur“ (Messías) — Pétur játar að Jesús er sá sem Guð lofaði í GT. Þetta er miðpunktur Markúsarguðspjalls.

8:30 Matt 16:20; Lúk 9:21

8:31 Matt 16:21; Lúk 9:22; Mark 9:31; Mark 10:33-34

8:31 Fyrsti spádómurinn um þjáningu Jesús útskýrir að Messías verður að þjást og deyja, ekki bara sigra. Manssonurinn, sjá Mrk 2:10.

8:32 Matt 16:22

8:33 Matt 16:23

8:33 Jesús kallar Pétur „Satan“ – ekki sem illmenni, heldur vegna þess að hann hugsar mannlega (vald og sigur) í stað áætlunar Guðs Guðs (þjáning og kross).

8:34 Matt 10:38; Matt 16:24; Lúk 9:23; Lúk 14:27

8:35 Matt 10:39; Matt 16:25; Lúk 9:24; Lúk 17:33; Jóh 12:25

8:36 Matt 16:26; Lúk 9:25

8:37 Matt 16:26

8:38 Matt 10:33; Lúk 9:26; 2Tím 2:12

8:38 Jesús kallar til fylgis sem kostar: að afneita sjálfum sér og taka kross (tákn dauða og vanvirðu). En hann lofar endurgjald við endurkomu sína í dýrð. Manssonurinn, sjá skýring við Mrk 2:10.